Velkomin að verkefninu Sparið orku og vatn
En vissir þú að þú getur sparað enn meiri orku og vatn með því að velja rétt uppþvottakerfi…?
Hvernig á að spara orku og vatn þegar uppþvottavélin er notuð
Vissir þú að með því að nota 50°C eða 55°C forrit eða sjálfvirkt (Automatic) forrit í stað háhitaforrita þegar þú notar uppþvottavélina geturðu sparað*:
…allt að 84 kWh af rafmagni á einu ári? Það eru um 80 umferðir til viðbótar eða um 3 mánaða uppþvottur ókeypis!
…allt að 1.497 lítrar af vatni á einu ári? Það samsvarar því vatnsmagni sem þú mundir nota í um 43 steypiböð eða 19 kerböð, við meðal notkunarhlutfall.
* byggt á á líklegum hámarkssparnaði sem hægt er að ná, með tilliti til úrtaks af vélum á markaði í Evrópu um þessar mundir og gagna um meðal notkunarmynstur véla í Evrópu.
Hvers vegna 50°C eða 55°C?
Hár hiti er yfirleitt ekki nauðsynlegur til að fá hreinan uppþvott. Ef mataráhöldin eru ekki óvenjulega óhrein geturðu valið 50°C eða 55°C og samt náð ágætum árangri.
Hver vegna sjálfvirk (Automatic) forrit?
Margar uppþvottavélar sem fást í dag eru með sjálfvirkt forrit sem getur stillt sig inn sjáfkrafa eftir því hvað er í vélinni og notað viðeigandi magn af vatni og orku í hverju tilviki.
Uppþvottaefni fyrir nýtísku sjálfvirkar uppþvottavélar vinna vel við 50°C, 55°C og með sjálfvirkum forritum, þegar þau eru notuð samkvæmt leiðbeiningunum, svo að þú færð þá hreinsun sem þú vilt, en notar í flestum tilvikum minni orku og vatn. Prófaðu því að stilla uppþvottavélina á 50°C, 55°C eða sjálfvirkt forrit og gerðu það að reglu. Einfaldlega með því að nota þessi forrit geriðu þitt fyrir umhverfið með því að spara orku og vatn en nærð samt í flestum tilvikum mjög góðum árangri við uppþvottinn.
Fleiri ábendingar til að spara orku og vatn
- Settu mataráhöldin í vélina samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda vélarinnar til að ná besta árangri við uppþvottinn
- Ahugaðu og hreinsaðu niðurföll og síur reglulega til að tryggja skilvirka notkun. Reyndu að láta uppþvottavélina ganga með fullu álagi og notaðu viðeigandi orku- og vatnssparandi forrit sem hæfa álaginu
- Taktu þér nokkrar mínútur til að leita í notendahandbókinni að skilvirkasta forritinu í samræmi við stærð og tegund álags í uppþvottavélinni.
Meira um verkefnið Sparið orku og vatn
- "Sparið orku og vatn" er sjálfviljugt framtak af hálfu iðnaðarins til að hvetja ney tendur til að fá sem mest út úr uppþvottavélum sínum með minni áhrifum á umhverfið.
- Þetta framtak var þróað af A.I.S.E., alþjóðasamtökum um sápur, hreinsiefni og viðhaldsvörur í Evrópu (the International Association for Soaps, Detergents and Maintenance Products in Europe www.aise.eu).
- Til að fá frekari upplýsingar um verkefnið, vinsamlega hafið samband við A.I.S.E. (aise.main@aise.eu)